Ef halda á veislu eða annan mannfögnuð er mjög sniðugt að leigja eldstæði frá Ecofuego til þess að gefa virkilega skemmtilegan blæ á svæðið. Eldstæðin loga í allt að 8 klst sem er nægur tími til þess að ná fram "VÁ" faktor. Að vera með eldstæði t.d. við inngang á árshátíð, í garðveislum og jafnvel uppi á jökli í jeppaferðum gefur einstakt andrúmsloft.
Eldstæðin eru einföld í notkun, auðvelt að kveikja í og auðvelt að slökkva aftur og það eru engin þrif eða annað vesen. Gæti ekki verið auðveldara.
El Campo eldstæðin eru frábær í útleigu enda koma þau í tösku með handfangi og því afskaplega auðveld í meðförum. Þegar viðburðinum er lokið er þeim leyft að kólna og svo bara sett aftur í pokana.
Það kostar aðeins 3500 kr. á dag að leigja hvert eldstæði fyrir sig og einn kubbur af vaxi kostar 7900 kr. pr. stk.
Hægt er að senda tölvupóst á sala@ecofuego.is til að fá nánari upplýsingar.